Nú voru að berast tíðindi af Sannleikanum. Nú er svo komið að einn fremsti hljóðblandari landsins er kominn með Sannleika plötuna inn á tölvuna hjá sér rás fyrir rás og hefur í hyggju að hljóðblanda hana upp á nýtt. Skv. mínum heimildum ætlar hann að setja nútímalegt sánd á kvikindið svo hægt sé að hækka í og fá stuðarann á bílnum til að hristast nánast af. Það þarf að vera feitur bassi og botn á þessu svo þetta kveiki almennilega upp í manni. Það verður svo hægt að nálgast gripinn auðveldlega, en meira um það síðar. Fyrir þá sem ekki vita þá er þetta heimsfræg plata og hægt er meira að segja að kaupa hana á netinu frá Svíþjóð. Skoðið bara hér.



