
Ég sjálfur.
August 20, 2006Það sást ef til vill á því sem skrifað var í gær ,að sonur minn Daníel var að kenna mér á bloggið , og skrifaði fyrir mig það sem þar er ,utan síðustu setninguna sem var á engilsaxnensku ,en hún kom frá honum sjálfum.En mér finnst rétt að byrja á því að kynna mig. Ég heiti Hjalti Gunnlaugsson og er að mati sumra fyrst og síðast tónlistarmaður .Því til sönnunar á ég um það bil 30 ti 40 lög útgefin á grammafónplötum ,(en fyrir yngri kynslóðina þá voru það einkennilegir svartir stórir gripir í laginu eins og matar diskar úr sparí stellinu hennar Ástu ömmu .sem voru notaðir á tímum svarthvíta sjónvarpsins, til að hlusta á tónlist )og geisla diskum .Ég naut þeirrar ánæju að vera giftur Helgu Bolladóttur í 20 ár , en einhver sagði um daginn að hún hefði fengið 20 ára dóm , 5 árum styttri en Mandela en liti samt mikklu betrur út en hann. Með henni á ég ( já á ég,,,ekki átti ég ) Þrjá yndislega syni Daníel. Símon,og Jóel, sem eru þyngdar sinnar virði í gulli. Svo var það fyrir 6 árum að mér tókst að fanga Kolbrúnu Ingimarsdóttur , og á með henni eina dóttur ,hana Bínu Hrönn ,sólageislan okkar allra Ég vil taka það fram að það verður enginn laga og textahöfundur án þolinmæði og stuðnings maka síns , og þann stuðning og þolinmæði hef ég fengið hjá báðum mínum konum , og vil nota þetta tækifæri til að þakka fyrir mig .En áður en þetta blogg verður eins og mynningagrein , þá er best að hætta. Enda nog um mig talað .Ég vil að lokum segja þetta . Mér finnst blogg vera eins og ókeypis sálfræðingur .maður talar og talar og talar og sáli þegir og rukkar.nema í blogginu eru eins margir sálar og skoða síðuna. en allir ókeypis. Að lokum þetta. Ég fékk 5.1 í stafsetningu á landsprófi , en stefni hærra…en bara einn dag í einu..
kveðja Hjalti G
Já…gott start…kjallinn kominn með tölvu og farinn að blogga á milljón. I like your style…keep it up!!