
Spekingurinn sagði
August 21, 2006Er ekki stundum eins og það sé hvíslað í eyrað á þér einhverju sem þér finnst vera mikil speki og alger sannindi sem enginn megi missa af. Stundum er það kannski algert bull ,en í annan stað lífbreytandi megasannindi. Ég heyrði t.d.þá kenningu að allar mannverur í heimi þessum væru klikkaðar. Já allar hver og ein einasta . Og ég hugsaði nei ekki allir mar .Ekki t.d. hann hérna…..eða hún þarna…..og mér til mikillar undrunar man ég engin nöfn allt í einu. Skrítið. og svo þegar ég heyrði að fólk skiftist bara í tvo hópa , þ.e þeir sem væru búnir að átta sig á þessu og svo hinir sem ættu það eftir..
Og ég ku vera í hóp með þeim sem áttar sig á því. Danninn er craaaazy!!