þetta er hún Bína Hrönn Hjaltadóttir. Og hún fór út að hjóla með föður sínum um daginn. Þau voru ein heima á laugardegi og datt í hug að fara út að hjóla. En þegar við vorum komin af stað þá vildi Bína litla hvíla sig aftur og aftur. En pabbi hennar var svolítið þreyttur á því að vera alltaf að stoppa. Þá var hjólað yfir götu og Bína sem er ekki nema 4 ára var lengi að fara yfir götuna .Og svo voru það allir róluvellirnir sem hún vildi stoppa á . Þá var pabbi orðin virkilega þreyttur og svolítið pirraður. Þá sagði Bína ” Ég elska þig samt þó þú sért alltaf að skamma mig pabbi ” . Og þá fattaði pabbi hennar Bínu allt í einu að þegar maður fer út að hjóla með 4 ára dóttur sinni þá má maður ekki vera með einhver fyrirfram gefin hjólreiðatúr heldur bara að leyfa deginum að líða eins og hann vill, sæll og glaður með það sem hjólreiðatúrinn hefur upp á að bjóða . Því það eru ekki allir sem eiga svona fallega 4 ára stelpu sem elskar mann þó að maður sé pirraður……..Það held ég nú…….
Archive for September, 2006

Hjólað og hjólað
September 16, 2006
Hnjúkarnir hans Kára skoðaðir.
September 12, 2006Já það er rétt ,gott væri að allir kynntu sér Kárahnjúka af eigin raun. Og það gerði frú Kolbrún um síðustu helgi. Þar var hún í góðum félagsskap eins og endranær. María sú sem Svanur á og Signý sú sem Sigurður á , Steina sem hann Diddi á, Systa sem hann Óskar á og Ágústa sem hann Bjarni á ásamt mökum . Sjálfur komst ég ekki vegna vinnu en Kolla tók videó í ferðini . Það er skemst frá því að segja að myndatakan var svolítið erfið vegna veðurs, en sérstaklega kaflin þar sem annar aðili aðstoðaði við upptöku . Sá kafli var eins og skelfilegur dagur á Herjólfi .Gubbubragðið komið upp í hálsinn og sjóveiki í algleymingi. En á myndunum sá ég ekkert sem ekki mátti fara undir vatn mín vegna. Hinsvegar hef ég meiri áhyggjur af arðsemi þessa verkefnis þar sem mönnum greinir mjög á um hana , en enginn hrópar húrra. Myndina tók systir María en hjálmurin fauk af henni þarna uppfrá og mesta mildi að fólkið fauk ekki sjálft. Ekki meira um það….

Rólegur Laugardagur
September 11, 2006Já ég sit hérna heima eldsnemma á laugardagsmorgni og langar aðeins að árétta tilgang þessarar síðu. Mig hefur vantað einhvern stað til að geima upplýsingar um tónlist mína. Stað þar sem ég get geimt texta og laga lista , ásamt öðrum upplýsingum. Mér var bent á að opna heimasíðu , en fannst það vera fyrir meiri hetjur en mig, en bloggsíða fannst mér mátuleg. Og nú er komin smá pistill inn á síðuna. Ef fólk smellir á nafnið mitt efst á síðuni þá er þar lítið eitt sem var sett sama fyrir nokkrum árum síðan og átt að fara í einhverja tónlistarmannabók , sem reyndar fór á hausinn. Svo bætum við bara við þær upplýsingar seinna. Ég er búin að slá einhverja 17 texta in í word skjal og mun fljótlega setja þá inn ásamt upplýsingum um hvar sé hægt að fynna lagið þá er maður komin af stað. Og svo fer bull og vitleysa með ásamt mis mikilli speki spekingsins. Meira síðar…HG

Landsleikur Framundan
September 6, 2006 Vinur minn sagði mér að hann hefði heyrt raddir í nótt. Og raddirnar hefðu sagt við hann “ef konunni þinni finnst mikilvægara að þú setjir í þvottavél en að þú njótir ásta með henni, þá er mjög líklegt að þú sért jafn góður og þvottavél í rúminu”. Og ég sem er nýbúin að læra á þvottavélina. Ég ráðlagði honum að sofa með byssu undir koddanum og skjóta röddina ef hún kæmi aftur, og ekki orð um það meir. En að máli málanna. Það er landsleikur framundan, og hvað er nauðsynlegt að hafa þá við hendina? Jú auðvitað hamborgara og kók. Myndin er einmitt tekin af síðasta hamborgara sem hinn verðandi sjónvarpskokkur Danni Hjalta útbjó fyrir aldraðan föður sinn. Blessað barnalán er þetta nú. Ég spái 2-1 fyrir Ísland en óttast að það verði á hinn veginn. Þ.e. að Danirnir vinni 2-1. En í öllu falli horfum við á allan leikinn, full af bjartsýni og þá er aldrei að vita. Og ef þeir tapa illa þá eru þeir samt áfram og að eilífu strákarnir okkar, muna það..
Kveðja Hjalti G.