h1

Landsleikur Framundan

September 6, 2006

paburger.JPG Vinur minn sagði mér að hann hefði heyrt raddir í nótt. Og raddirnar hefðu sagt við hann “ef konunni þinni finnst mikilvægara að þú setjir í þvottavél en að þú njótir ásta með henni, þá er mjög líklegt að þú sért jafn góður og þvottavél í rúminu”. Og ég sem er nýbúin að læra á þvottavélina. Ég ráðlagði honum að sofa með byssu undir koddanum og skjóta röddina ef hún kæmi aftur, og ekki orð um það meir. En að máli málanna. Það er landsleikur framundan, og hvað er nauðsynlegt að hafa þá við hendina? Jú auðvitað hamborgara og kók. Myndin er einmitt tekin af síðasta hamborgara sem hinn verðandi sjónvarpskokkur Danni Hjalta útbjó fyrir aldraðan föður sinn. Blessað barnalán er þetta nú. Ég spái 2-1 fyrir Ísland en óttast að það verði á hinn veginn. Þ.e. að Danirnir vinni 2-1. En í öllu falli horfum við á allan leikinn, full af bjartsýni og þá er aldrei að vita. Og ef þeir tapa illa þá eru þeir samt áfram og að eilífu strákarnir okkar, muna það..

Kveðja Hjalti G.

Leave a Comment