
Hnjúkarnir hans Kára skoðaðir.
September 12, 2006Já það er rétt ,gott væri að allir kynntu sér Kárahnjúka af eigin raun. Og það gerði frú Kolbrún um síðustu helgi. Þar var hún í góðum félagsskap eins og endranær. María sú sem Svanur á og Signý sú sem Sigurður á , Steina sem hann Diddi á, Systa sem hann Óskar á og Ágústa sem hann Bjarni á ásamt mökum . Sjálfur komst ég ekki vegna vinnu en Kolla tók videó í ferðini . Það er skemst frá því að segja að myndatakan var svolítið erfið vegna veðurs, en sérstaklega kaflin þar sem annar aðili aðstoðaði við upptöku . Sá kafli var eins og skelfilegur dagur á Herjólfi .Gubbubragðið komið upp í hálsinn og sjóveiki í algleymingi. En á myndunum sá ég ekkert sem ekki mátti fara undir vatn mín vegna. Hinsvegar hef ég meiri áhyggjur af arðsemi þessa verkefnis þar sem mönnum greinir mjög á um hana , en enginn hrópar húrra. Myndina tók systir María en hjálmurin fauk af henni þarna uppfrá og mesta mildi að fólkið fauk ekki sjálft. Ekki meira um það….
Fyrirsagnir fyrir Fréttablaðið…
“Kristilegir Kárahnjúkar” eða “Kárahnjúkar Kristnaðir” eða “Kristið fólk segir Kárahnjúka verk djöfulsins!”
Góðar þessar fyrirsagnir.