

Sannleikurinn
February 27, 2006Nú voru að berast tíðindi af Sannleikanum. Nú er svo komið að einn fremsti hljóðblandari landsins er kominn með Sannleika plötuna inn á tölvuna hjá sér rás fyrir rás og hefur í hyggju að hljóðblanda hana upp á nýtt. Skv. mínum heimildum ætlar hann að setja nútímalegt sánd á kvikindið svo hægt sé að hækka í og fá stuðarann á bílnum til að hristast nánast af. Það þarf að vera feitur bassi og botn á þessu svo þetta kveiki almennilega upp í manni. Það verður svo hægt að nálgast gripinn auðveldlega, en meira um það síðar. Fyrir þá sem ekki vita þá er þetta heimsfræg plata og hægt er meira að segja að kaupa hana á netinu frá Svíþjóð. Skoðið bara hér.


Lúkkið
February 17, 2006Ég set kannski inn svona fyrsta draft af forsíðunni í kvöld. Þá geta áhorfendur jafnvel glöggvað sig aðeins á því við hverju er að búast…væri það ekki gaman?

Update.
February 17, 2006Sæl öll…Daníel hér. Ég ákvað að láta vita af því að smíðin á síðunni fyrir meistara Hjalta tók smá kipp í gær. Hjaltinn sjálfur fékk fyrir stuttu að líta mínar hugmyndir um lúkk á síðuna og leist vel á, þannig að grafíkvinnan fer í fullt swing núna bráðlega. Það ætti ekki að vera neitt rosalega langt í þetta…stay tuned!

Hello world!
February 9, 2006Ja sælinú. Hér mun rísa fyrsti uppdráttur að síðu Hjalta Gunnlaugssonar, hins merka tónskálds úr týndu borginni. Í gegnum myrkrið í þessari borg óttans mun rísa ljós sem lýsir svo allir fái séð…eitthvað.